Sunnudagur, 24. júní 2007
Aravísur
Það var ýmislegt gert um helgina. Upphaflega stóð til að halda almennilega afmælisveislu fyrir Mána en þar sem margir af hans vinum eru í ferðalögum var því frestað. Þess í stað rúntuðum við austur eftir landinu með nesti í poka. Fórum alla leið austur að Seljalandsfossi og gengum bak við hann. Það höfum við ætlað að gera í mörg ár... loksins varð af því.
Eftir nestisát og afslöppun ákváðum við að slá tvær flugur í einu höggi. Renna á Flúðir í stutt kaffistopp hjá Steinu og Co. og jafnvel hitta á Hlyn bróðir sem ætlaði kannski að vera þar skotturnar sínar.
Þetta fór náttúrulega allt öðruvísi. Við fórum þaðan fimm eða sex tímum síðar, Mánalaus, en hann varð eftir hjá frændum sínum. Hlynur var svo að berjast við tjald og rok á Laugarási.
Í dag brunaði Kristín austur að sækja hann á meðan ákvað ég að taka hjólhestinn fram og skella á skeið. Eftir smá rennirí fram og til baka um fjörðinn var stefnan tekin upp að Hvaleyrarvatni. Brunaði þangað í góðum fíling og fór hratt yfir. Það var töluvert af fólki við vatnið og mikið fjör. Ég renndi að eins lengra, eða þar sem Þytur, flugmótelfélagið er með aðstöðu. Horfði þar á netta flugsýningu. Þegar ég var svo rétt nýlagður af stað aftur til baka sprakk á fáknum. ég mátti gjöra svo vel og stíga af baki og leiða kvikindið alla leið heim. Þar voru bæturnar teknar upp og hafist handa við að lagfæra ósköpin. Ég átti eina götótta slöngu sem ég bætti í leiðinni og hef heitið mér því að fara ekki lengra en út í sjoppu án þess að vera með gúmmíið og pumpu meðferðis.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.