Sunnudagur, 17. júní 2007
Esjan endilöng
Jæja, þá getur maður með sanni sagt að Esjan hafi verið lögð undir fót. Við Þórólfar gengum hana endilanga, ásamt því að leggja Laufskörð og Móaskarðshnjúka undir okkur. Esjan er ekkert svo skemmtilegt fjall. Langt og frekar leiðinlegt. Hún er leiðinlega grýtt og seinfarin. Frá þeim stað sem við lögðum upp, við Ártún, og á leiðarenda eru þetta um 25 kílómetrar, svona svipað langt og milli Skóga og Þórsmerkur, Fimmvöðruháls. Þetta var fínasta dagur engu að síður enda skemmtilegur félagsskapur.
Eftir gott bað fengum við Kristín okkur svo góða nautasteik og rauðvínstár. Vorum svo steisofnuð fyrir miðnætti. Við voru þreytt, Dog tired eins og John Coffee í The Green Mile.
Nú, í svona göngum þá fer maður að hugsa ýmislegt. Ég fór að velta Lóunni fyrir mér. Hún er allra laglegasti fugl, en mikið afskaplega þykir mér vælið í henni leiðinlegt. Sama hvað ég reyni þá get ég ekki heyrt dirrindí, eða dýrðin dýrðin. Mér þykir vælið minna frekar á dapran blús. Forfeður okkar voru náttúrlega svo þjakaðir eftir erfiða vetur og svo blúsaðir að vælið í Lóunni var bara punkturinn yfir i-ið. Það er haldið upp á hana af gömulum vana.
Athugasemdir
jamm ótrúlega leiðinleg ganga í ótrúlega góðum félagsskap :)
Þórólfur (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 09:38
Hmm... vinnur þú hjá Nasa ?
Þórólfur aftur (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 09:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.