Föstudagur, 1. júní 2007
Minn tími
Ég hef komist að því að auglýsingar, alla vegana sumar, virka bara ekki baun í bala á mig. Um daginn ákváðum ég og systir að heimsækja Húsasmiðjuna í Skútuvogi eftir vinnu. Þar sem ég var á hjóli og ætlaði að koma mér heim fyrst vildi ég kanna hvað væri lengi opið, hvort þetta yrði eitthvað stress hjá okkur. Nú, á heimasíðunni kemur fram að að það sé opið til klukkan 21 öll kvöld. Um leið og ég sá það rifjaðist það upp fyrir gospelauglýsingin "nýr tími". Já alveg rétt. Ég er nú svo sem ekki einn um að taka illa eftir auglýsingunni, því þegar við vorum í búðinni heyrði ég afgreiðslumann svara í símann og segja að, jú það væri opið til níu. Spælandi að eyða skrílljónum í auglýsingu sem virkar ekki.
Ég ætti kannski að segja, spælandi hvað ég tek illa eftir...
Ég nennti ekki að hjóla í vinnuna í morgun. Vaknaði klukkan hálf sjö, leit út og skreið uppí aftur. Steinsofnaði og svaf næstum yfir mig. Jæja, hjólaði tvo daga af fjórum. Stefni á að minnst kosti fjóra af fimm í næstu viku.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.