Já svoleiðis nokk

Í dag glöddust gumar og sprundir.  Sumarið var alltumleikis og ekki annað hægt en að njóta þess í botn. 

Það fór lítið fyrir fjallgöngu hjá mér en þess í stað var hjólað.  Ég lagði af stað um klukkan þrjú, eftir að Bogga systir og Týri höfðu kíkt í kaffi til mín, sem við drukkum úti.  Ég var ekki alveg viss hvert mig langaði að fara en svo var bara stokkið af stað.  Renndi sem leið lá í gegnum Garðabæ og Kópavog til Reykjavíkur.  Strikið tekið á Sæbrautina og svo var ströndin þrædd aftur til Hafnarfjarðar með ýmsum útúrdúrum og krókum.  Þetta urðu eitthvað um fimmtíu kílómetrar og tæpir þrír tímar.

Á morgun ætla ég að ganga á Helgafellið.  Það klikkar ekki. 

Ég er orðinn mjög spenntur fyrir Glerárdalshringnum.  Þolið hefur aldrei verið betra og heilt á litið hef ég sjaldan eða aldrei verið í eins góðu gönguformi og nú. 

Svo styttist í dásemd allra dásemda, Hornstrandir, en við eigum reyndar eftir að ákveða endanlega hvar við göngum.  Ég hef verið að lesa Hornstrendingabók Þorleifs Bjarnasonar.  Sú bók lýsir vel hve lífsbarátta íbúa svæðisins hefur verið hörð og erfið.

Ég vona að það verði sumar líka á morgun...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Úff - maður verður nú bara þreyttur eftir að lesa svona blogg - Verð glöð og ánægð með sjálfa mig ef ég næ þremur kílómetrum á þremur tímum. - á fullt í fangi með að halda í við 5 ára hjólreiðagarpa.

Sumir eru greinilega í betra formi en aðrir

Birgitta Ingþórssystir (IP-tala skráð) 27.5.2007 kl. 22:17

2 Smámynd: Heiðar Birnir

Púff.  Já.  Þetta er bara skelfilegt.   Þetta lítur út fyrir að vera vel skreytt með öllu sem til fellur.  En... hmmm.  Tobba toppar þetta alltsaman.

Heiðar Birnir, 27.5.2007 kl. 23:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband