Alveg gengur ţetta glimrandi vel

Jćja.  Hvítasunnuhelgi, oft kölluđu fyrsta ferđahelgi ársins.  Ţađ er nú lítiđ ferđaveđur núna.  Frekar kalt og lítiđ spennandi ađ tjaldbúast.  En ţetta fer allt ađ koma.

Í vikunni lauk Hjólađ í vinnuna, átaki ÍSÍ.  Vísarar stóđu sig alveg hreint međ mestu ágćtum.  Viđ urđum í fimmta sćti yfir dagafjölda og í sjötta sćti yfir flesta kílómetra á starfsmann.  Ég held ađ ég hafi endađ í 351 km.  Samt ekki alveg viss.  Síđasti dagurinn var ţriđjudagur, og á miđvikudag sá mađur varla nokkurn hjólamann á ferđinni úr eđa í Hafnarfjörđinn.  Viđ erum náttúrulega átaksfólk međ eindćmum.  Tökum ţađ međ trompi.

Ţađ má vel vera ađ mađur skelli sér í göngu á morgun.  Fara á Vörđuskegga í Henglinum nú eđa á Móskarđshnúka.  Ćtli mađur láti ekki kylfu ráđa kasti.  Nú einnig er spennandi ađ fara í tveggja til fjögurra tíma hjólatúr.  Mađur sér til hvernig veđur og fćrđ verđur.

Ég gekk í Sjálfbođaliđasamtök um náttúrvernd í vetur.  Ţetta er félagskapur sem vinnur ađ göngustígagerđ og fleirum álíka verkefnum víđsvegar um landiđ.  Ég veit ekki hversu virkur ég verđ, en fyrsta verkefniđ sem ég ćtla ađ taka ţátt í er á fimmtudagskvöldiđ nćsta. 

Kristín og Máni farinn austur í sveitina.  Sauđburđur í fullum gangi.  Strákurinn ekkert smá ánćgđur međ ađ vera kominn í sumarfrí.  Algjör sćla. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband