Vegalaus úti í óbyggðum með langa fyrirsögn vommandi yfir hausnum

Það birtist heilsíðuauglýsing í einhverju blaðinu í dag frá því ágæta fyrirtæki Brimborg.  Þar sagði að bílar menga ekki, heldur mennirnir sem þá keyra og eiga.  Einmitt.  Byssur drepa heldur ekki, heldur þeir sem þær eiga. 

Bílar eru fræbærir og allt gott um þá að segja.  Ég hef ekkert undan þeim að kvarta, en svona auglýsingar eru bara prump.  Það mætti alveg eins segja að nammi skemmir ekki tennur, rigning gerir mann ekki blautan nema maður standi óvarinn úti undir berum himni í rigningu.  Dæmalaus vitleysa.

Þar sem ég hef ekki enn gert upp hug minn varðandi kosningarnar núna á laugardaginn, gerði ég það að gamni mínu að taka eitt skemmtilegt próf sem á að sýna hvert hugur manns stefnir.  Til að sannfærast tók ég prófið í tvígang og lét líða sólarhring á milli.  Það er skemmst frá því að segja að ég, kaupfélagsstjórasonurinn sjálfur, aðhyllist minnst framsóknarflokknum.  Það kemur mér svo sem ekki mikið á óvart.  Samkvæmt þessu prófi kýs ég Hindúaflokk sem hefur ekki enn verið stofnaður, en hann kemur til með að leggja áherslu á Hatha yoga, baunaspíruræktun, íhugun og að fá Formúlu eitt keppni hingað til lands.  Ég verð væntanlega dauður þegar að þessu öllu saman kemur.

Ég heyrði aðeins í vini mínum í dag, en hann er búsettur úti í Noregi.  Hann er að kæfa sig í vinnu og kvefi en hefur það þó fram yfir okkur að sumarið er byrjað að banka uppá hjá þeim.  Hann gerir ráð fyrir að það bresti á með fullum þunga eftir tvær vikur eða svo.  Ég vona að okkar sumar láti sjá sig ekki seinna en um miðjan júlí og vari, að minnsta kosti fram í ágústlok.  Þá verð ég alsæll.  Nú er bara að bíða, vona og sjá.

Ég er ekki enn búinn að átta mig á nýja teljarasísteminu hér á moggabloggi.  Kem væntanlega ekki til með að skilja það.  En það er líka barasta allt í lagi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er búinn að segja að sumarið komi eftir 2 vikur nokkuð lengi, en er það ekki partur af lífinu að eiga sér draum. Mig dreymir um sumar.

ven i Norge (IP-tala skráð) 10.5.2007 kl. 16:19

2 Smámynd: Elvar Guðmundsson

Já, botna heldur ekkert í þessu teljaradrasli...  Klóra mér í hausnum og geng í hringi...

Elvar Guðmundsson, 10.5.2007 kl. 20:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband