Verra gæti það nú verið

Jæja, okkur VÍSurum gengur bara skratti vel í átakinu hjólað í vinnuna.  Dólum svona í 4-7 sæti.  Þegar ég kom heim eftir vinnu hafði ég klárað eitthvað um 109 km.  Það er ágætt á ekki lengri tíma.

Í dag, á heimleiðinni var mér hugsað um celeb, íslensk celeb.  Selebb.  Við erum svo fátæk af selebbum og öll erum við orðin hundleið á að sjá alltaf sama fólkið framan á og í öllum tímaritum að eitthvað þarf að gera.  Jú þá er tjaldað til flugfreyjum.  Ég sá í einhverju blaði um daginn þar sem flugfreyja (starfsheitið var sérstaklega tekið fram) mælti með einhverri innréttingu, fataskáp eða einhverju álíka.  Framan á séð og heyrt er sagt að einhver fasteignasali hafi haldið áramótapartí.  Þetta þykir mér lítið merkileg frægð.  En ég er nú líka svo smekklaus og fylgist lítið því sem er hipp og kúl.

Það styttist í kosningar.  Ég veit ennþá ekki hvaða flokk ég ætla að kjósa.  En ég er sannfærður um hvaða flokkar myndi næstu stjórn.  Það verða Sjálfstæðisflokkur og Samfylking.  Ég þori að veðja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband