Föstudagur, 7. ágúst 2009
Föstudagur og tærnar enn upp í loft
Við leggjum í'ann á mánudaginn, hvert ferðinni verður heitið er ekki á hreinu - fer eftir veðri og vindum. Hvað við verðum lengi er einnig á huldu, það fer einnig eftir veðri og vindum. Við erum búin að fá lánað fellihýsi hjá vinnufélaga. Það verður bara frábært að reyna sig við slíkan lúxus.
Veiðistöng og bjór... þarf maður eitthvað fleira?
Athugasemdir
Bóndinn myndi vera sammála, veiðistöng og bjór = fullkomin útilega.
Ég myndi skipta veiðistönginni út fyrir nokkrar bækur. Þá væri ég sátt. Góða skemmtun.
Húsmóðir, 8.8.2009 kl. 17:16
... ég lauma nú með einni bók eða svo ... svona til að hafa þetta fullkomið
Heiðar Birnir, 8.8.2009 kl. 18:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.